Skilmálar
Viðskiptaskilmálar.
Hvernig samstarfið virkar, á mannamáli. Síðast uppfært 2. nóvember 2026.
1. Aðilar
Skilmálar þessir gilda um viðskipti milli AVL Production ehf., kt. 410726-0170 („Varða“) og viðskiptavinar sem kaupir þjónustu Vörðu („viðskiptavinur“). Þjónustan er ætluð fyrirtækjum og rekstraraðilum.
2. Þjónustan
Vefsíða. Varða hannar og smíðar vef fyrir viðskiptavininn án endurgjalds. Viðskiptavinur greiðir mánaðargjald (nú 14.990 kr. á mánuði) fyrir hýsingu, viðhald, öryggisuppfærslur og minni háttar breytingar á efni.
Markaðssetning. Varða sér um uppsetningu, texta, myndefni og eftirfylgni auglýsinga gegn mánaðargjaldi (nú 49.990 kr. á mánuði). Kostnaður sem greiddur er til auglýsingamiðla (t.d. samfélagsmiðla og leitarvéla) er ekki innifalinn. Viðskiptavinur ákveður þá upphæð og greiðir hana beint til miðilsins eða samkvæmt samkomulagi.
Nánara umfang hvers verkefnis er staðfest skriflega, t.d. í tölvupósti, áður en vinna hefst.
3. Verð og greiðslur
Verð eru í íslenskum krónum. Mánaðargjald fyrir vef hefst þegar vefurinn fer í loftið. Mánaðargjald fyrir markaðssetningu hefst þegar fyrsta herferð fer í loftið. Reikningar eru gefnir út mánaðarlega og gjalddagi er 14 dögum eftir útgáfu. Varða getur breytt verði með einn mánuð fyrirvara.
Sé reikningur ógreiddur 30 dögum eftir gjalddaga má Varða gera vefinn óvirkan eða stöðva auglýsingar þar til greitt hefur verið.
4. Binditími og uppsögn
Binditími er 3 mánuðir frá því að vefurinn eða auglýsingarnar fara í loftið. Að binditíma loknum framlengist samningurinn um mánuð í senn og má segja honum upp með einn mánuð fyrirvara, miðað við mánaðamót. Uppsögn skal vera skrifleg, t.d. í tölvupósti.
5. Eignarhald og efni
Viðskiptavinur á allt efni sem hann leggur til, svo sem texta, myndir og merki, og ber ábyrgð á að hafa rétt til að nota það. Viðskiptavinur á lén sitt. Hönnun og forritun vefsins er í eigu Vörðu á meðan á samningi stendur.
Við lok samnings fær viðskiptavinur afhent allt sitt efni. Viðskiptavinur getur jafnframt keypt vefinn til eignar samkvæmt samkomulagi.
6. Ábyrgð
Varða leggur sig fram um að vefir séu aðgengilegir og öruggir, en ábyrgist ekki að þeir séu alltaf án truflana, t.d. vegna bilana hjá hýsingaraðilum. Varða ber ekki ábyrgð á óbeinu tjóni, svo sem tekjutapi. Ábyrgð Vörðu takmarkast að hámarki við þau mánaðargjöld sem viðskiptavinur hefur greitt síðustu þrjá mánuði.
Varða ábyrgist ekki tiltekinn árangur af auglýsingum, þar sem hann ræðst m.a. af auglýsingafé, samkeppni og reglum miðlanna.
7. Persónuupplýsingar
Þegar Varða vinnur með persónuupplýsingar fyrir hönd viðskiptavinar, t.d. fyrirspurnir sem berast í gegnum vef hans, er Varða vinnsluaðili og viðskiptavinur ábyrgðaraðili. Sjá einnig persónuverndarstefnu.
8. Breytingar og lögsaga
Varða getur breytt skilmálum þessum. Verulegar breytingar eru tilkynntar viðskiptavinum með minnst einn mánuð fyrirvara. Um skilmálana gilda íslensk lög. Rísi ágreiningur skal reynt að leysa hann í sátt, en annars má reka mál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.